Starfsmaður slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu varð fyrir leiðinlegri reynslu í nótt þegar óprúttinn aðili eða aðilar brutust inn í bílinn hjá okkur. Eldgallatösku var stolið, en í henni er allur nauðsynlegur búnaður fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, til dæmis eldvarnagalli.
Í færslu á Facebook er biðlað til þess sem í hlut á að skila töskunni aftur, en gallinn var sérsaumaður fyrir starfsmanninn sem um ræðir.
„Stundum verðum við orðlaus og það á við í dag en einn starfsmaður hjá okkur lenti í mjög leiðinlegu atviki í nótt þegar að brotist var inn í bílinn hjá honum og eldgallatösku stolið. Í töskunni er allur nauðsynlegur búnaður fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn t.d eldvarnagalli. Eldvarnagallinn er lífsnauðsynlegur þegar við förum í brunaútköll og þess vegna er þessi verknaður algjörlega óskiljanlegur í okkar huga. Gallinn var sérsaumaður og setur því starfsmanninn okkar í enn meiri vandræði sem okkur þykir miður.
Við biðlum til þess aðila sem tók töskuna að sjá sóma sinn í því að skila henni aftur, það væri auðvitað langbesta lausnin fyrir alla.“