Það tók slökkvilið yfir fjóra klukkutíma að slökkva eld í sumarbústað í gær. Ekki er vitað um eldsupptök. Þetta kemur fram í Facebook færslu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Í samtali við Fréttablaðið staðfestir vakthafandi varðstjóri að enginn hafi slasast í eldsvoðanum en að ein kona hafi verið fyrir utan bústaðinn. „Það var ein kona fyrir utan sumarbústaðinn þegar við komum á vettvang. Við athugun reyndist hún ómeidd.“
Tæknideild lögreglunnar rannsakar nú eldsupptök.
„Góðan daginn.
90 sjúkraflutningar hafa verið síðasta sólahring og þrjú útköll á dælubíla. Eldur varð í sumarbústað við Lynghólsveg á Hólmsheiði.
Við komu var bústaðurinn alelda og var slökkt í honum utanfrá. Ekki er vitað um eldsupptök en slökkvistarf stoð yfir í 4 klukkutíma og var vettvangur afhentur lögreglu í gærkvöldi til eftirlits og rannsóknar.
Njótið dagsins og farið varlega.“ Segir í Facebook færslu slökkviliðsins.