- Auglýsing -
COVID-19 smitum hefur fjölgað hratt undanfarna daga. Samtals hafa 103 einstaklingar verið greindir hér á landi.
Frá því í gærkvöldi hafa fimmtán tilfelli af veirunni sem veldur COVID-19 sjúkdóminum verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.
80 smit tengjast ferðum erlendis en 23 eru innanlandssmit. Uppruna flestra smita má rekja til Norður-Ítalíu og skíðasvæða í Ölpunum en þrjú smit hafa greinst frá einstaklingum sem komu hingað frá Bandaríkjunum. Um 1.000 sýni hafa verið tekin í heild.