- Auglýsing -
Smit vegna COVID-19 kórónuveirunnar eru orðin 171 hér á landi samkvæmt vefsíðu embættis landlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Covid.is.
Er þetta fjölgun um átta tilfelli frá því á upplýsingafundinum sem hófst klukkan tvö í dag og stóð yfir í fjörutíu mínútur.
Alls eru 1.672 í sóttkví en 1.868 sýni hafa verið tekin.