Smitrakning stendur yfir vegna hugsanlegrar hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er vitað um tvö innanlandssmit sem talið er að rekja megi til Íslendings sem talinn er hafa smitast í útlöndum, en hafði ekki greinst með veiruna við komuna til landsins. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.
Miklum fjölda fólks hefur verið skipað í sóttkví vegna málsins og líklegt er að fjölga muni í þeim hópi. Mjög mikilvægt er að allir þeir sem fá boð um sóttkví hlíti því undanbragðalaust og fylgi öllum fyrirmælum í hvívetna. Þannig er hægt að minnka líkur á að hugsanleg hópsýking sem þessi leiði til víðtækari afleiðinga.
Áréttað skal að þeir sem sæta 14-daga sóttkví vegna útsetningar fyrir smiti þurfa að ljúka henni, jafnvel þótt sýnataka á tímabilinu gefi neikvæða niðurstöðu.
Almannavarnir vilja einnig koma á framfæri þeim eindregnu tilmælum til Íslendinga sem snúa heim frá útlöndum, að þeir fari gætilega fyrst um sinn eftir heimkomu, taki ekki þátt í mannmörgum viðburðum, og takmarki samneyti við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af COVID-19, svo sem aldrað fólk.