Hönnun og öryggisprófun á sérstöku smáforriti sem auðveldar vinnu við smitrakningu vegna útbreiðslu COVID-19 er að ljúka. Gera má ráð fyrir að forritið verði tekið í notkun á morgun. Þessu greindi Alma Möller landlæknir frá á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra áðan.
Hún segir að miklar líkur á að hægt verið að hefja notkun á forritinu á morgun, af allt gengur eftir. „Þó það sé 1. apríl,“ sagði Alma.
Hún segir forritið byggja á svokölluðu tvöföldu samþykki, þ.e. notandinn þarf fyrst að samþykkja að sækja forritið í símann sinn. Forritið fylgist svo með ferðum út frá GPS. Þær upplýsingar eru geymdar í síma viðkomandi. „Ef notandinn greinist svo með COVID-19 þá þarf notandi svo að veita smitrakningarteymi leyfi til að nálgast upplýsingarnar,“ sagði Alma.
Forritið verður kynnt betur á morgun að sögn Ölmu. Það hefur verið prófað og vottað af óháðum aðila.
Sjá einnig: Skilur að fólk hiki við að sækja smáforritið