Staðfest COVID-19 smit eru orðin 737 talsins hér á landi samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 89 á síðasta sólarhring.
Alls eru 9.013 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar.
507 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og 460 sýni voru rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahússprestur á Landspítala, verður gestur á fundinum og svarar spurningum fjölmiðla