Fjöldi staðfestra COVID-19 smita er kominn upp í 1.785 hér á landi. Sjö ný smit hafa greinst á síðasta sólarhring samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Virkum smitum fer fækkandi á milli daga en virk smit voru 313 í gær, þau voru 351 talsins daginn áður, mánudag.
Í gær voru 240 sýni rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, fjögur þeirra reyndust jákvæð af COVID-19. Þá voru 397 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, þrjú smit greindist í þeim sýnum.
Samkvæmt tölum covid.is hafa 1.462 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar í dag klukkan 14.00. Gestur fundarins verður Anna Birna Jensdóttir, samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.