Laugardagur 7. september, 2024
8.7 C
Reykjavik

Sóley og Lenya ósammála: „Vilja frelsi til að selja kynlíf á meðan önnur upplifa sig beitt ofbeldi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Hvernig væri að hlusta á fólk sem er sjálft í kynlífsvinnu áður en við förum að móta einhverja stefnu fyrir þau?“ spyr Lenya Rún Taha Karim, þingmaður Pírata, í færslu sem hún birti á Twitter-síðu sinni í dag.

Mikil umræða hefur myndast um vændi í kjölfar fréttaflutnings um vændiskaup Einars Hermanssonar, fráfarandi formanns SÁÁ.

Færsla Lenyu vakti athygli Sóleyjar Tómasdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Vinstri grænna.

Sóley skrifar athugasemd við færsluna og gagnrýnir Lenyu fyrir hennar nálgun á málefnið.

„Öll stefnumótun hvað þessi mál varðar er byggð á reynslu og þörfum fólksins sjálfs. Með því að úthrópa stuðningsfólk núverandi laga ertu að úthrópa ansi stóran hóp fólksins sem þú vilt að hlustað sé á. Þetta er ekki uppbyggileg nálgun,“ segir Sóley.

Lenya segir að málið snúist um þarfir fólks í kynlífsvinnu og jaðarsetningu þeirra.

- Auglýsing -

„Swerfismi er ekki að fara að leysa neitt,“ segir hún svo en orðið swerfism er ensk skilgreining yfir femínista sem láta mál fólks í kynlífsvinnu sig ekki varða.

Sóley spyr þá Lenyy hver þessi um hvaða hóp hún sé að ræða þegar hún segir „okkur“. „Um hver og án hvers? Það er klofningur innan hópsins þar sem sum vilja frelsi til að selja kynlíf á meðan önnur upplifa sig beitt ofbeldi,“ segir hún.

Lenya svaraði þá fyrir sig og sagðist ekki hafa ætlað sér að skjóta á neinn.

- Auglýsing -

„Ég held að það hljómi eins og ég sé að skjóta á einhvern útaf því ég sagði „móta stefnu“ en það er ekki meiningin,“ segir hún. „Tístið hefur ekkert með lög að gera heldur umræðuna á samfélagsmiðlum hvað þetta varðar. Ég held að „ekkert um okkur án okkar“ sé fín nálgun og hefur alltaf verið.“

„Ég hef tilhneigingu til að hlusta á og taka mið af þörfum og vilja jaðarsettasta fólksins sem er síðarnefndi hópurinn í þessu tilviki,“ segir Sóley.

Lenya segist þá vera að tala um að það þurfi að hlusta á þolendur vændis og einnig kynlífsverkafólk. Hún segir umræðuna verið viðkvæma og að aðkoma beggja hópa fólks í kynlífsvinnu sé nauðsynleg til þess að hægt sé að gera umhverfið þolendavænna.

„Einn hópurinn er kannski jaðarsettari en hinn en báðir hópar vilja eflaust láta heyra í sér og eiga rödd innan samfélagsins. Ég vil hlusta og læra,“ segir Lenya svo að lokum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -