Laugardagur 30. nóvember, 2024
-4.8 C
Reykjavik

Sóley smalar í Samfylkingu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Orðrómur

Baráttujaxlinn Sóley Tómasdóttir, fyrrum leiðtogi Vinstri-grænna í Reykjavík, hefur gengið til liðs við Samfylkinguna. Hún hefur jafnframt lagt sitt að mörkum til að draga aðra með sér í flokkinn með því að skora á fleliri að koma. Sóley lýsti því að hvatinn að breytingunni sé sá að hún vilji tryggja að Heiða Björg Hilmisdóttir verði endurkjörinn sem varaformaður Samfylkingar og þannig fyrirbyggja að Helga Vala Helgadóttir alþingismaður sigri í áskorandaeinvíginu. Sóley nefnir sérstaklega að Heiða Björg sé feministi og hafi náð miklum árangri í baráttunni fyrir þann þjóðfélagshóp. Öldungis er óvíst að stuðningsmönnum Heiðu takist að verjast áhlaupi Helgu Völu en viðbúið er þó að fleiri úr VG fylgi í fótspor síns  gamla leiðtoga og skríði í faðm Samfylkingarinnar undan þeim nöpru vindum sem nú næða um Vinstri græna í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Nærtækt er að ætla að Rósa Brynjólfsdóttir gangi til liðs við Samfylkinguna og hugsanlega baráttufélagi hennar, Andrés Ingi Jónsson sem hrökklaðist úr VG ásamt Rósu síðar: Þessi þróun kann að verða VG stórhættuleg í komandi kosningum …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -