„Þetta er ekkert grín krakkar; nú þegar Anna er á fjórða degi í einangrun og búið að líða ömurlega, var ég að greinast líka,“ segir Sóley í færslu á Facebook og bætir við: „Er fjandi slöpp en hlýt að komast í gegnum þetta.“
Heldur áfram:
„Við fjölskyldan, erum auðvitað í sóttkví eins og lög gera ráð fyrir, og erum að kafna úr smitskömm. Við myndum svo vilja óska þess að örlögin væru öðruvísi en það er víst ekki í boði og segir að næstu fjórtán dagana verðum við mæðgur á Siglufirði; eigum sem betur fer gott fólk að og dásamlegt útsýni. Gerið það nú fyrir mig að fara varlega og njóta frelsisins skynsamlega.“
Mannlíf sendir fjölskyldunni batakveðjur.