Sunnudagur 19. janúar, 2025
0.5 C
Reykjavik

Sonur Ingu Sæland kominn í stjórn ríkisfyrirtækis: „Frændhygli hefur ráðið miklu um þessa skipun“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stjórn Íslandspósts tók miklum stakkaskiptum á dögunum en nánast öllum stjórnarmönnum ríkisfyrirtækisins var skipt út.

Vakið hefur athygli á að Baldvin Örn Ólason, sonur Ingu Sæland, þingmanns og formanns Flokks fólksins er kominn í stjórn Íslandspósts.

Á veraldarvefnum finnast engar upplýsingar um menntun eða starfsreynslu hans, að undanskildri einni frétt frá árinu 2018 þar sem hann er titlaður verkefnastjóri Flokks fólksins, segir í grein Innherja í dag.

Þar kemur fram að Auður Björg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjártæknifélagsins Two Birds, muni halda sæti sínu í stjórninni en Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson, Guðný Hrund Karlsdóttir og Baldvin Örn Ólason koma í stað þeirra sem skipt var út.

Baldvin Örn var á lista Flokks fólksins í þingkosningum árið 2016, hann var í 5. sæti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Á upplýsingasíðu RÚV um Baldvin fyrir kosningarnar er ekki miklar upplýsingar að finna. Hann er titlaður sem ráðgjafi en ekkert er sagt um fyrri störf eða menntun hans. Þá fylgir ekki með mynd af Baldvini eins og sjá má á skjáskotinu hér fyrir neðan.

Ekki verður betur séð enn að frændhygli hafi ráðið miklu um þessa skipun enda er sægur af þrautreyndu fólki í atvinnulífinu sem unnt hefði verið að leita til. Þetta er þörf áminning um að eigendastefnu ríkisins sé ábótavant. Ótrúlegt en satt vantar enn lýsingu á faglegu ferli við tilnefningu einstaklinga í stjórn ríkisfyrirtækja á borð við Íslandspóst sem veltir 7,5 milljörðum króna á ári.

- Auglýsing -

Stjórnarlaun hjá Íslandspósti eru 177 þúsund krónur á mánuði.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -