Einhvers konar sjálfskipaðir sóttvarnarsérfræðingar eru áberandi á samfélagsmiðlum þessa dagana vegna útbreiðslu COVID-19. Þá hafa margir netverjar bent á að nú sé ekki rétti tíminn til að hlusta á samsæriskenningar og getgátur sem fara sem eldur um sinu á Netinu.
Facebook-hópurinn Kórónuveiran COVID-19 hefur vakið mikla athygli undanfarið en meðlimir hópsins eru rúmlega 11 þúsund. Þar kennir ýmissa grasa og margskonar samsæriskenningar og upplýsingar sem virðast úr lausu lofti gripnar eru fyrirferðarmiklar innan hópsins.
Á meðan sumir láta allt flakka þá eru aðrir sem minna á að ekki sé skynsamlegt að trúa öllu sem er skrifað á vegg hópsins.
„í Guðana bænum reynum að hafa þesss síðu málefnalega og hættum að fara með bull ófestar staðreyndir um þessa ógn sem stafar að okkur í augnablikinu, pössum hvað við segju, það er fólk sem tekur bókstaflega því sem hér er sagt pössum okkur,“ skrifar einn meðlimur hópsins.
„Er ekki tímabært að hætta því að vera með endalausa gagnrýni á störf þess fólks sem er í framlínunni vegna Coronu-veirunnar. Þetta eru okkar helstu sérfræðingar. Treystum því frekar að þeir séu að gera það besta sem þeir kunna í svona aðstæðum. Þeirra hagsmunir eru hvorki meiri né minni en okkar hinna. Förum eftir fyrirmælum þeirra,“ skrifar annar.
Notendur Twitter hafa þá margir bent á að best sé að hlusta á sérfræðinga þegar kemur að upplýsingum um útbreiðslu COVID-19.
Af hverju eru einhverjir úti í bæ að krefjast einhvers varðandi viðbrögð við COVID? Það eru sérfræðingar að vinna dag og nótt og uppfæra okkur öll daglega. Leyfum þeim að vinna vinnuna sína og sjá um að stýra aðgerðum og á móti hlýðum við því sem þessir sérfræðingar segja.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) March 11, 2020
https://twitter.com/sylviaahall/status/1238030135871275008
Ótrúlegt að það sé ekki búið að stöðva útbreiðslu kórónaveirunnar miðað við hvað við eigum marga sérfræðinga í veiruvörnum á Facebook.
— Atli Fannar (@atlifannar) March 11, 2020
Allir þessir besserwisserar og sjálfskipuðu veirusérfræðingar með sinn endalausa áróður og yfirdrull á samfélagsmiðlum eru farnir að fara í taugarnar á mér. Get ekki betur séð en það sé verið að taka á þessum faraldri af mikilli fagmennsku.
— Tanja Rún Kristmanns (@tanjarunk3) March 11, 2020
Kóviti – Einstaklingur sem er sjálfskipaður sérfræðingur í sóttvörnum og veirufræðum.https://t.co/Kn8WcV2z8h
— David Erik Mollberg (@davemol5) March 10, 2020