- Auglýsing -
„Gunnar Smári Egilsson er Jóhanna Sigurðardóttir með skegg. Hans tími er í þann veginn að koma,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, álitsgjafi og pólitískur greinandi um stöðu Sósialistaflokks Íslands. Páll Ásgeir varð fyrir hughrifum eftir að hann hlýddi á Gunnar Smára Egilsson, stofnanda flokksins, í Silfrinu á RÚV í dag. Telur hann fullvíst að stórir sigrar bíði hins nýja flokks í komandi alþingiskosningum. Hann tjáði sig í stöðufærslu á Facebook.
„Ég sá spámanninn í Silfrinu áðan og þá heyrði ég hófatak og sá sýnir. Sósíalistaflokkurinn verður sigurvegari næstu kosninga svo eftir verður tekið. Tíminn er kominn.Skyndilega falla allar stærstu öldurnar í samfélaginu með smælingjunum sem hefur alltof lengi vantað málsvara og fulltrúa. Þar munar mestu um 25 þúsund atvinnulausa sem verða í leit að kjörkassa þegar líður á næsta ár. Þetta verður svakalegt,“ segir Páll Ásgeir.
Ekki taka allir undir með Páli Ásgeiri í athugasemdum. Flosi Kristjánsson, leiðsögumaður og langferðabílstjóri, telur Gunnar Smára ekki trúverðugan þar sem hann hafi áður stigið dansinn í útrásinni.
„Málsvari útrásarinnar kominn í nýjan kufl og er núna talsmaður hinna smáðu og útskúfuðu?“ skrifar Flosi.