Staðfest COVID-19 smit eru orðin 588 talsins samkvæmt nýjustu tölum á covid.is.
Flest smitanna hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu eða 473. Alls eru 6.816 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar.
183 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, sunnudag. Á laugardaginn voru 320 sýni rannsökuð á deildinni og 30 sýni hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan 14.00 í dag. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, verður á fundinum ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni, Ölmu D. Möller landlækni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni.