- Auglýsing -
Staðfestum COVID-19 smitum hefur fjölgað í dag. Átta ný tilfelli af COVID-19 sjúkdómnum voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans nú í kvöld.
Heildarfjöldi tilfella er því 117 er fram kemur á Facebook-síðu almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Þar segir að smitrakning sé í gangi.