- Auglýsing -
Í dag hafa fimm ný COVID19-smit greinst. Þrjú þeirra eru innlend og en þeir veiku höfðu verið í samskiptum við einstaklinga sem voru á hættusvæðum erlendis. Hinir tveir sýktust erlendis.
Tveir þeirra sem greindust með veiruna eru á þrítugsaldri, einn á fertugsaldri, einn á fimmtugsaldri og einn á áttræðisaldri. Allir fimm eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu.
Fjöldi staðfestra tilfella eru nú orðin 50 , þar af eru sjö innanlandssmit.