Staðfest COVID-19 smit eru orðin 648 talsins hér á landi samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 60 á síðasta sólarhring.
Alls eru 8.205 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar.
357 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og. Ekkert sýni var rannsakað hjá Íslenskri erfðagreiningu vegna skorts á sýnatökupinnum. Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, sagði á blaðamannafundi í gær að skortur á pinnum væri „áhyggjuefni“.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Á fundinum verður beint sjónum að heilsugæslunni og mun Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóra lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, fara yfir það sem er efst á baugi varðandi verkefnin, rafræn vottorð og fleira.