Staðfest COVID-19 smit eru orðin 802 talsins hér á landi samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 65 á síðasta sólarhring. 15 sjúklingar eru á sjúkrahúsi vegna veirunnar, tveir á gjörgæslu.
Alls eru 9.889 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar.
461 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og 427 sýni voru rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands. Hann mun, ásamt Þórólfi og Víði, ræða reiknilíkan sem tölfræðingar og vísindamenn við HÍ hafa þróað vegna faraldurs COVID-19 hér á landi.