Starfsfólk Eflingar er óttaslegið vegna óvissu um hvort Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður stéttarfélagsins muni snúa aftur.
Ragnheiður Valgarðsdóttir sagði frá andanum sem nú ríkir vegna málsins í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hún segir starfsfólkið velta fyrir sér hvort hún myndi biðjast afsökunar og hvernig hún ætlaði sér að stjórna vinnustaðnum eftir allt sem á undan er gengið.
Óvissa um það hvort Sólveig gefi kost á sér til endurkjörs hafi valdið starfsfólki bæði kvíða og vanlíðan.
„Það sem særir okkur er það að hún er búin að æsa upp félagsmenn og aðra í kommentakerfum til að tala illa um okkur. Hún er að búa til óvild gagnvart okur til að skara eld að sinni köku. Hún er búin að gefa algjört skotleyfi á okkur,“ sagði Ragnheiður í viðtalinu.
Sólveig sagði af sér eftir að fjölmiðlar höfðu varpað ljósi á erfitt ástand innan fyrirtækisins en var hún sökuð um að hafa stjórnað með ógnun.
Aðspurð um ákvörðun Sólveigar að segja af sér sagði Ragnheiður:
„Við höfðum ekkert út á stefnu hennar að setja og unnum af heilum hug fyrir félagið. Hún ákvað sjálf að móðgast. Þetta er algjörlega leikrit sem hún setur upp sjálf“.