Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skýtum föstum skotum að Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra LÍN í grein á vef Kvennablaðsins um helgina.
Segir Steinunn það vekja eftirtekt að LÍN birti auglýsingar sínar um laus störf aðeins í Morgunblaðinu, en ekki á öðrum miðlum sem einnig hafi tekjur af atvinnuauglýsingum. Vill Steinunn rekja ástæðuna til þess að Hrafnhildur Ásta og Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins eru skyld, en þau eru þremenningar.
Steinunn skýtur einnig á lesendur Morgunblaðsins og segir að þeir séu „flestir komnir af fótum fram, geta vart ritað nafnið sitt lengur svo það skiljist og ekki líklegir að endast við þungbæra skrifstofuvinnu.“