- Auglýsing -
Irina Shayk er á ferðalagi um Ísland þessa dagana.
Rússneska fyrirsætan Irina Shayk nýtur lífsins á Íslandi þessa stundina og hefur hún verið dugleg að birta myndir á samfélagsmiðlum af því sem á vegi hennar verður á ferðalaginu.
Hún birti til að mynda mynd af sér við Jökulsárlón í fyrradag en nýjasta myndin á Instagram-síðu hennar er mynd af henni í íslenskri náttúru þar sem hún klæðist sundfötum frá ítalska merkinu Intimissimi.
Þess má geta að Irina og bandaríski leikarinn Bradley Cooper er nýskilin. Saman eiga þau eitt barn.