Hópur íslenskra dansara stóð sig vel í Champions of Tomorrow danskeppninni sem haldin var í Blackpool í Englandi um helgina.
Kristinn Þór Sigurðsson og Lilja Rún Gísladóttir lentu 1. sæti í U21 latin í Champions of Tomorrow danskeppninni sem haldin var í Blackpool í Englandi um helgina. Daníel Sverrir Guðbjörnsson og Sóley Ósk Hilmarsdóttir urðu í 2. sæti í U22 Ballroom og Aron Logi Hrannarsson og Rósa Kristín Hafsteinsdóttir lentu í 3. sæti í Junior.
Guðjón Erik Óskarsson og Eva Karen Ólafsdóttir voru í 6. sæti í Juvenile Ballroom og 7. sæti í Latin. Fannar Kvaran og Fanný Helga Þórarinsdóttir komust í undanúrslit í Ballroom og 24 para í Latin.
Daði Freyr Guðjónsson, sem margir kannast við úr þáttunum Allir Geta Dansað, og Fanney Gísladóttir voru í undanúrslitum í ProAm latin og Ballroom.