Rólegt var yfir borginni í nótt og lítið um alvarleg brot. Tilkynnt var um stolið reiðhjól í austirborginni. Lögreglu barts tilkynning um muni sem fundust í sorði veitingastaðar í miðborginni. Ekki er tilgreint í Dagbók lögreglunnar hvers eðlis munirnir voru. Á svipuðum slóðum var vanstilltum og óvelkomnum gesti vísað út í nóttina.
Í miðborginni var brotist inn í geymslur. Óljóst er með tjón.
Tveir slógust í austurborginni og var lögreglan kölluð til.
Vegfarendum brá nokkuð þegar rásandi bifreið kom aðvífandi. Lögreglan fann ekki bifreiðina þrátt fyrir eftirgrennslan.
Tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi í sveimi í Breiðholti.