„Manni líður ofboðslega vel líkamlega og andlega þegar maður er búinn að taka smáskurk í plokki, þó að það sé ekki nema klukkutími eða tveir. Ef maður getur smitað fleiri með sér er það bara frábært því margar hendur vinna létt verk, eins og einhver sagði,“ segir almannatengillinn og þúsundþjalasmiðurinn Einar Bárðarson.
Einar stofnaði nýverið Facebook-hópinn Plokk á Íslandi, sem er vísan í sænska æðið plogging. Plogging, eða plokk á góðri íslensku, snýst um að ganga, hlaupa og skokka um en í leið tína upp rusl af götunum.
„Ég hef orðið sífellt meðvitaðri um hvað er mikið rusl, og sérstaklega plast, í náttúrunni og hvað þetta er mikill skaðvaldur. Síðan horfir maður á fólk tuða út í eitt um að hinn eða þessi eigi að sjá um þetta. Þannig að í staðinn fyrir að sitja á rassgatinu og tuða um af hverju enginn taki upp allt þetta rusl þá ákvað ég að byrja að plokka,“ segir Einar. Hann var byrjaður að ganga um og tína rusl áður en hann kynntist plokki.
„Ég er svo sem engin súperhetja í þessu en ég hef rölt endrum og sinnum með plastpoka og tínt upp, sérstaklega plast. Plastið nefnilega blotnar ekki. Það heldur áfram að fjúka og endar með því að fjúka út í sjó ef maður tekur það ekki. Í vetur sá ég síðan myndband á samfélagsmiðlum þar sem var verið að lýsa þessu æði sem heitir plogging,“ segir Einar.
Einar tekur einnig fram að hlauparinn Eyþór Hannesson hafi veitt sér mikinn innblástur, en Eyþór hefur í um áratug safnað rusli á hlaupaferðum sínum. Þá nefnir hann einnig lögfræðinginn Sigurð G. Guðjónsson í þessu samhengi, en hann stofnaði Facebook-hópinn Rusl í Reykjavík. Sigurður stundar það að tína upp rusl í göngutúrum með hundinum sínum Atlasi og birtir afraksturinn í hópnum.
Frítt, skemmtilegt og gerir samfélaginu gagn
Um fjögur hundruð manns eru meðlimir í Plokk á Íslandi. Í kjölfar stofnunar hópsins hafa hóparnir Plogging Iceland og Plokk í Breiðholti verið stofnaðir sem gleður Einar mikið.
„Vonandi dreifist þetta út um allt. Þetta er frítt, þetta er skemmtilegt og maður er að gera samfélaginu gagn. Allt frá krökkum upp í gamalmenni geta plokkað og það gerir það hver á sínum hraða. Innan hópsins Plokk á Íslandi hafa einnig myndast hópar, eins og sá sem vinkona mín Árdís Ármannsdóttir er með. Það eru konur í fæðingarorlofi sem hittast með barnavagnana og plokka. Þær kalla þetta Tölt með tilgang. Mér finnst það alveg frábært.“
Sjálfur er Einar orðinn ansi liðtækur í plokki og ætlar að halda því áfram um ókomna tíð. „Mér bara blöskrar allt þetta rusl. Breytingin byrjar hjá okkur sjálfum. Ég er farinn að stoppa á umferðareyjum og tína upp flugeldakökur. Ætli fólk í nærliggjandi bílum velti ekki fyrir sér hvað sé eiginlega að mér,“ segir Einar og hlær.
Plast í sjónum
- Þeir sem leggja sér sjávarfang til munns eru líklegir til þess að melta um 11.000 plastagnir á ári samkvæmt nýlegum útreikn-ingum vísindamanna við Ghent-háskóla í Belgíu.
- Árið 2050 verður meira plast í sjónum en fiskar.
- Ein helsta ástæða plastmeng–unar er framleiðsla á plastflöskum. Árið 2016 voru 460 milljarðar plastflaskna seldir í heiminum, rúmlega ein milljón flaskna á mínútu.
- Vísindamenn áætla að 26 milljónir tonna af plasti endi í sjónum á ári hverju og drepi milljónir af sjávarlífverum.
Aðalmynd / Óli Magg
Aðrar myndir / Úr einkasafni