- Auglýsing -
Jarðskjálfti upp á 5,1 að stærð varð nú rétt fyrir klukkan 10.30 við Fagradalsfjall við Grindavík. Skjálftans varð vart víða, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var skjálftinn það snarpur að kalla þarf út auka mannskap.
Annar skjálfti, 3 að stærð, varð klukkan 10.15.
Uppfært: Í Facebook-færslu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra kemur fram að skjálftinn hafi verið 5,2 að stærð.