Í tilkynningu frá Vodafone kemur fram að það sé „komið að leiðarlokum hjá okkur í Smáralind en eftir 20 frábær ár saman höfum við ákveðið að loka verslun okkar þar.“
Það er þakklæti sem er ofarlega í huga:
„Við viljum fyrst og fremst þakka þér og öllum sem komu í heimsókn til okkar í gegnum árin. Síðasti opnunardagur Vodafone í Smáralind verður sunnudaginn 29. desember og hvetjum við þig til að nýta dagana milli jóla og nýárs en við munum taka vel á móti þér með kaffi, súkkulaði og skemmtilegum varningi.“
Og svo lokaorðin:
„Um leið og við kveðjum Smáralind viljum við bjóða öllum viðskiptavinum okkar hjartanlega velkomna í verslun okkar á Suðurlandsbraut 8. Þar getur þú komið í heimsókn alla virka daga milli kl. 9 – 18. Ný helgaropnun hefst á Suðurlandsbraut fyrstu helgina í janúar, á laugardögum frá kl. 11 – 16 og á sunnudögum frá kl. 12 – 16.“
Svo mörg voru þau orð.