Einn besti leikmaður Íslands frá upphafi, Haukur Helgi Pálsson, er genginn í raðir Álftaness; mun hann leika með liðinu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á næsta keppnistímabili.
Frá þessu greindi félagið frá á samfélagsmiðlum sínum.
Haukur Helgi, sem er 31 árs gamall, hefur undanfarin tvö ár leikið með Njarðvík; hann er uppalinn hjá Fjölni í Grafarvogi, eins og nýr liðsfélagi hans, Hörður Axel Vilhjálmsson, sem skrifaði einnig undir samning við Álftanes nýverið.
Haukur Helgi hefur leikið 68 landsleiki; hann var í afar stóru hlutverki með landsliðinu á Evrópumótinu 2015 í Þýskalandi og Evrópumótinu 2017 í Finnlandi.
Álftanes er að safna saman í rosalegt lið og verður gaman að sjá hvernig liðinu vegnar á næsta tímabili.