Rétt í þessu lenti strætisvagn í nokkuð hörðum árekstri við fólksbíl, á Listabraut, nálægt Kringlunni.
Samkvæmt farþega sem Mannlíf ræddi við, urðu ekki meiðsl á fólki í strætisvagninum en vissi farþeginn ekki með bílstjórann í fólksbílnum. Sagði hann að hvellurinn hafi verið mikill en svo virðist sem bíllinn hafi beygt í veg fyrir strætisvagninn sem rann í snjónum og fór inn í hliðina á honum en lúmsk hálka er á vegum borgarinnar um þessar mundir. Fólksbíllinn rakst svo aðeins í annan bíl en var það minniháttar
Aðeins var bílstjóri í fólksbílnum en gat hann keyrt af götunni og út í kant en ekki er vitað um meiðsl hans. Lögregla og sjúkrabíll eru nýkomin á svæðið.