Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nóg að gera í nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar.
Ferðamaður nokkur flúði af veitingastað í miðbænum án þess að borga reikninginn. Komst hann undan en lögreglan rannsakar málið.
Tilkynnt var um hópslagsmál í miðbænum og þá datt aðili af rafmagnshjóli, einnig í miðbænum. Lögreglan og sjúkralið kom á vettvang og hlúði að aðilanum sem hlaut áverka á andliti við fallið. Ekki var um að ræða alvarleg meiðsl.
Þá missti aðili meðvitund í miðbænum eftir að hafa dottið aftur fyrir sig. Var aðilinn fluttur á slysadeild með sjúkrabíl til frekari aðhlynningar.
Aðili var stunginn í bakið í miðbænum en gerandinn flúði vettvang og er enn leitað. Árásarþolinn var fluttur með meðvitund á slysadeild til frekari aðhlynningar. Lögreglan gefur ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
Í Hafnarfirði handtók lögreglan óðan mann inni á skemmtistað. Gisti hann fangageymslu í nótt vegna ástands.
Í Kópavogi veittist maður að starfsfólki í apóteki en var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði. Einnig barst lögreglu tilkynning um þjófnað í Smáralind. Sá grunaði var kærður fyrir þjófnað.
Tilkynning barst svo lögreglu í Breiðholtinu um hóp af krökkum sem voru að reyna að kveikja í leiktækjum á skólalóð. Voru krakkarnir farnir þegar lögreglan mætti á vettvang og engar skemmdir að sjá.
Lögreglan var kölluð að skemmtistað í Grafarvoginum vegna slagsmála en ástandið var þegar orðið rólegt þegar hana bar að garði og engin krafa um aðgerðir.