Olga María Þórhallsdóttir Long, vinkona og frænka Söndru Lífar Þórarinsdóttur Long, sem fannst látin 14. apríl, hefur stofnað styrktarreikning henni til heiðurs.
„Slysavarnafélagið Landsbjörg mun fá hluta af því sem safnast inn á reikninginn,“ segir Olga María. „Afgangurinn mun fara upp í festival sem Sandra Líf talaði mikið um að vilja halda í Viðey. Ég vil halda festival þar næsta sumar til heiðurs Söndru Líf eins og hún myndi vilja, en hún talaði um að halda tónlistarfestival þar, sem væri áfengis- og vímuefnalaust.“
Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta lagt inn á reikninginn sem er á nafni Olgu Maríu:
Reikningur 0511-14-003625
Kennitala 010395-3059