Í næstu viku hefst Sumarskóli fyrir unga söngleikara. Kennslan fer fram í Söngskóla Sigurðar Demetz dagana 29.júní til 3.júlí, nánar tiltekið frá klukkan 9-16. Sumarskólinn er fyrir börn á aldrinum 9-14 ára annars vegar og hinsvegar 15 ára og eldri.
Markmiðið er að undirbúa unga söngleikara undir frekara nám í söngleikjum. Nemendur læra undirstöðuatriði í söngtækni, dansþjálfun, leiklistarvinnu, samvinnu við undirleikara og framkomu á sviði. Einnig verður lögð áhersla á hvernig best er að undirbúa sig fyrir prufur.
Kennarar í sumarskólanum eru tónskáldið Axel Ingi Árnason, danshöfundurinn Auður Bergdís Snorradóttir, leikkonan Jana María Guðmundsdóttir og söngkonan Valgerður Guðnadóttir.
Sem fyrr segir hefst kennsla í næstu viku og geta áhugasamir upprennandi söngleikarar skráð sig með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].