Í vor sendu Bændasamtökin og Matvælastofnun bréf til mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, þar sem bent er á að alvarlegur skortur sé á dýralæknum hér á landi.
Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir lögfræðingur er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og segir hún að í bréfinu hafi þess verið farið á leit við Lilju að hún beiti sér fyrir aðgerðum til úrbóta.
Í framhaldinu funduðu fulltrúar Bændasamtakanna, Matvælastofnunar og Dýralæknafélags Íslands, með fulltrúum menntamálaráðuneytisins.
Vigdís segir að á fundinum hafi fátt komið fram annað en „að fulltrúar menntamálaráðuneytisins telja málaflokkinn flokkast undir landbúnaðarráðuneytið þrátt fyrir að menntun dýralækna falli undir ráðuneyti menntamála. Málið er því enn í vinnslu og ég reikna með að ráðuneytin tvö séu að ræða sín á milli um hvernig á að leysa það farsællega.“
Í áðurnefndu bréfi til ráðherra mennta- og menningarmála segir einnig að síðustu ár hafi skortur á dýralæknum hér á landi verið mikið í umræðunni.
„Bændasamtök Íslands og Matvælastofnun óska eftir að ráðherra menntamála beiti sér fyrir því að gerð verði athugun á því hvaða áhrif þessi skortur hafi á íslenskan landbúnað og atvinnuhætti í íslenskum landbúnaði. Jafnframt skora samtökin og stofnunin á að ráðherra, í samstarfi við viðkomandi fagráðuneyti í landbúnaði, finni lausn á þessum skorti.“
Einnig að „skortur á dýralæknum getur meðal annars haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir aðgengi bænda og almennings að dýralæknaþjónustu sem gætu haft alvarleg áhrif á heilsu og velferð dýra, auk fjárhagslegs tjóns fyrir bændur.“
Þá er bent á að „skorturinn hefur líka gert það að verkum að MAST hefur þurft að leita eftir erlendu starfsfólki til að gera stofnuninni kleift að sinna skyldum sínum.“
Bændasamtök Íslands og MAST skora í bréfinu á menntamálaráðherra að finna lausn á skorti á dýralæknum hér á landi og óska eftir því að undirbúin verði skýrsla sem byggir á upplýsingum um hvaða áhrif skortur á dýralæknum muni hafa á íslenskan landbúnað og atvinnuhætti í íslenskum landbúnaði.
Segir einnig að „fulltrúar Bændasamtakanna og MAST eru reiðubúin til frekari viðræðna um efni þessa erindis við ráðherra og fulltrúa ráðuneytisins.“
Heimild: bbl.is