„Ég er náttúrlega svo ungur að ég bað Svölu um að fara með mig í Húsdýragarðinn en hún tók það ekki í mál og planaði frábæran afmælisdag fyrir mig, frá morgni til kvölds,“ segir Kristján Einar Sigurbjörnsson, kærasti Svölu Björgvinsdóttur um 23ja ára afmælisdaginn sinn. Kristján Einar grínast þarna við Fréttablaðið vegna aldursmunar á honum og kærustunni sem verður 45 ára eftir nokkrar vikur. Hann lætur sér aldursmuninn í léttu rúmi liggja og lýsir djúpri og einlægri ást. Sjálfur er Kristján Einar glerharður sjómaður á frystitogaranum Helgu Maríu og stendur vel fyrir sínu.
„Framtíðin er hamingja, fjölskylda, heilsa, velgengni, vinirnir, ferðalög, og að sjálfsögðu allt þetta með henni Svölu minni,“ sagði Kristján Einar.