Mánudagur 25. nóvember, 2024
-2 C
Reykjavik

Svandís: „Covid er á blússandi siglingu, risið þannig að við verðum að bregðast hratt við“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, er á því að óumflýjanlegt sé að herða sóttvarnaaðgerðir vegna stöðunnar vegna Covid 19 hér á landi.
Svandís vill ekki tjá sig ekki um hvað komi fram í minnisblaðinu sem Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sendi henni í dag, en segir þó að hann leggi til hertar aðgerðir.
Í fyrramálið kemur ríkisstjórnin saman til fundar þar sem Svandís fer yfir tillögur Þórólfs.

Í gær greindust 144 með veiruna; þriðji mesti fjöldi á einum degi frá upphafi faraldursins og þá hafa aldrei fleiri greinst utan sóttkvíar.

Eins og fram kom hjá Mannlífi er mjög stórt hópsmit komið upp á Akranesi; 50 manns greindust í gær og 75 eru í einangrun.

„COVID er komið á blússandi siglingu, risið á kúrfunni er óþægilega bratt þannig að við verðum að bregðast hratt við,“ segir Svandís.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -