Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, vill til að veiðigjald hækki á næsta ári um 2,5 milljarða króna; á nafnvirði miðað við núverandi áætlun næsta árs, eins og segir í grein á mbl.is.
Kemur fram að hækkunin muni leggjast aðallega á uppsjávarútgerðirnar; sem veiða síld, loðnu, kolmunna sem og makríl.
Gert ráð fyrir að þær greiði 2,3 milljarða króna á næsta ári í stað þeirra 700 milljóna sem þær myndu greiða að óbreyttu.
Samþykki Alþingi breytinguna munu útgerðirnar greiða um 9,5 milljarða og hækkunin nemur því tæplega 36 prósentum.
Þetta kemur fram í greinargerð frumvarps um breytingu á lögum um veiðigjald sem birt hefur verið á vef Alþingis.