Framleiðendur sjónvarpsþáttanna vinsælu The Bachelor hafa valið svartan mann í hlutverk piparsveinsins í fyrsta sinn í átján ára sögu þáttanna. Sá heitir Matt James, er tuttugu og átta ára gamall fasteignasali og var upphaflega ráðinn af ABC-sjónvarpsstöðinni til að taka þátt í þáttunum The Bachelorette og keppa við aðra þáttakendur um ástir Clare Crawley í næstu þáttaröð.
Samkvæmt frétt The Metro tilkynntu framleiðendur The Bachelor í dag, 12. júní, að gengið hefði verið frá ráðningu Matts James í hlutverk piparsveinsins eftir þrýsting frá áhorfendum og þáttakendum um að auka fjölbreytileika þátttakenda í þáttunum. Þáttaröðin sem hann kemur fram í verður sú tuttugasta og fimmta í röðinni af þessum geysivinsælu þáttum og áætlað er að hún verði sýnd á næsta ári.
Áður en hann gerðist fasteignasali með eigin stofu hafði Matt menntað sig í hagfræði við Wake Forest University og verið atvinnumaður í ruðningi.
Mynd / Skjáskot ABC
The Bachelor casts Matt James as first Black male lead for Season 25