Líkt og Mannlíf fjallaði um í apríl síðastliðnum lengjast biðlistar í ADHD- greiningar með ári hverju. Sögðu ADHD samtökin frá því þann 30.mars síðastliðinn að í nýrri ályktun þeirra skori samtökin á ráðherra og þingmenn að auka fjárframlög til greininga og þjónustu við fólk með ADHD. Í ályktuninni segir enn fremur að biðlistar hafi aldrei verið lengri en nú.
„Afleiðingar aðgerðarleysis liðinna ára kalla hinsvegar á stóraukið fjármagn næstu árin, til að vinna niður þá 3-4 ára biðlista sem nú blasa við. Þannig og aðeins þannig getur nýtt skipulag greininga og þjónustu á vegum hins opinbera orðið sú mikla samfélags bót sem vonir standa til. Valið stendur í raun um óbreytt ástand með áralöngum biðlistum eða að Ísland verði til fyrirmyndar á heimsvísu þegar kemur að lífsgæðum fólks með ADHD.“
Samkvæmt ADHD samtökunum getur bið á greiningu því verið allt að fjögur ár en stangast það verulega á við ný svör Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem birtust í Fréttablaðinu í dag. Sagði Willum biðtíma eftir ADHD-greiningu vera 2,8 ár við fyrirspurn Ernu Bjarnadóttur, varaþingmanns Miðflokksins. Ekki liggur fyrir hvort mikil breyting hafi orðið frá því í apríl byrjun en viðmiðunarmörk Landlæknis um ásættanlega biðtíma eru 30 dagar eftir skoðun hjá sérfræðingi og 90 dagar eftir meðferð eða aðgerð.