- Auglýsing -
Taylor Swift kom af fjöllum þegar spjallþáttastjórnandinn Jimmy Fallon sýndi afar vandræðalegt myndband af henni í þættinum The Tonight Show Starring Jimmy Fallon.
Söngkonan Taylor Swift var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon í síðustu viku. Jimmy Fallon kom henni á óvart og sýndi meðfylgjandi myndband sem móðir Taylor Swift tók án hennar vitundar.
Myndbandið tók hún eftir að Swift fór í laseraðgerð á augum ekki alls fyrir löngu. Eftir aðgerðina fékk Swift sterk verkjalyf sem höfðu mikil áhrif á hana. Áhrifin voru meðal annars þau að banani grætti hana.
„Guð minn góður! Þetta er í sjónvarpinu,“ sagði Swift undrandi eftir að Fallon sýndi myndbandið.