- Auglýsing -
Tónlistargoðsögnin Paul McCartney hefur nú greint frá því að sonur hans, James McCartney, hefði sent frá sér nýtt lag, Primrose Hill.
Það sem er afar spennandi við þetta lag er sú staðreynd að McCartney yngri samdi það með engum öðrum en Sean Ono Lennon, syni Johns Lennons.
Vinirnir Sean Ono Lennon og James McCartney sömdu lagið saman og er fólki almennt séð að líka vel við það sé eitthvað að marka athugasemdir á netinu.
Nú hafa því Lennon & McCartney sameinast á nýjan leik í gegnum syni sína; stundum er lífið dásamlegt.