Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Maskína framkvæmdi fyrir Lífsvirðingu um viðhorf almennings til dánaraðstoðar leiða í ljós að meirihluti svarenda er hlynntur dánaraðstoð.
Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu. Könnunin fór fram á Netinu dagana 19. – 25. nóvember 2019. Svarendur eru 18 ára og eldri af öllu landinu.
Svarendur voru 1027 og voru gögnin vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu í samræmi við upplýsingar úr Þjóðskrá er fram kemur á vef Maskínu.
37% svarenda sögðust mjög hlynntir því að einstaklingur hljóti dánaraðstoð ef
hann er haldinn sjúkdómi eða ástandi sem hann upplifir óbærilegt og metið hefur verið ólæknandi.
40,7% sögðust fremur hlynntir. 15,4 sögðust í meðallagi. 4,4% svarenda eru frekar andvígir og 2,4% mjög andvígir.
Svarendur sem voru andvígir dánaraðstoð voru beðnir um að greina frá ástæðunni fyrir því að viðkomandi væri andvígur. 30,7% sögðu „hætta á misnotkun“ vera ástæðuna.
Niðurstöður könnunarinnar má sjá hér.