Tilkynnt var um eld í gömlu, yfirgefnu einbýlishúsi í Fossvogi laust fyrir klukkan fjögur í nótt. Allt tiltækt lið var sent á vettvang. Slökkvistarf stendur enn yfir þar sem verið er að rífa þak hússins og slökkva í síðustu glæðunum.
RÚV greinir frá. Eldurinn var talsvert mikill þegar komið var á vettvang. Húsið er gjörónýtt og verður rifið. Árni Oddson varðstjóri stjórnaði vinnu slökkviliðs á vettvangi í nótt og segir hann húsið hafa staðið autt um nokkurt skeið. Reykkafarar fóru um allt húsið og viðbyggingu við það og fundu ekki nokkurn mann.
Húsið er gamalt bárujárnsklætt timburhús í niðurníslu. Eins og áður segir er það gjörónýtt eftir eldinn. Talið er að upptök eldsins hafi verið utan hússins við austurenda þess. Árni vildi ekki svara því hvort um íkveikju væri að ræða. Lögreglan mun rannsaka vettvanginn.
Mikill reykur lagðist yfir næsta nágrenni þegar húsið brann, þar á meðal yfir Landspítalann í Fossvogi og RÚV. Á þriðja tug slökkviliðs-, lögreglu- og sjúkraflutningamanna voru á vettvangi þegar mest var.