Hjólahópurinn Team Rynkeby Ísland heimsótti Bessastaði í gær og færði Guðna Th. Jóhannessyni forseta treyju að gjöf.
Vel var tekið á móti hópnum eins og sjá má á myndum sem Brynja Kristinsdóttir ljósmyndari tók, en hún tók þátt í verkefninu í fyrra.
Guðbjörg Þórðardóttir og Viðar Einarsson byrjuðu með Team Rynkeby á Íslandi árið 2017, en um er ræða verkefni þar sem hjólreiðafólk hjólar frá Kolding á Jótlandi til París í Frakklandi.
Í lok september í fyrra afhenti Team Rynkeby Íslands Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna 23.611.699 krónur með viðhöfn í Smáralind, en þá hafði verkefnið verið haldið í þrjú ár.
Sjá einnig: Team Rynkeby Ísland afhendir Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna tæpar 24 milljónir króna
Í ár átti fjórða skiptið að vera nú í júlí, en sökum kórónuveirufaraldursins var hjólaferðin felld niður. Íslenski hópurinn hefur þó hist í fjólmörgum hjólaferðum hér heima í staðinn og safnað fé til styrktar krabbameinssjúkum börnum.
Fylgjast má með Team Rynkeby Ísland á Facebook-síðu og heimasíðu verkefnisins.