Lík konu og karls fundust á Sólheimasandi í morgun, skammt frá göngustíg að flugvélarflaki þar. Um er að ræða erlenda ferðamenn sem voru að ferðast saman.
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að fólkið hafi að öllum líkindum orðið úti. Oddur segir þetta í samtali við mbl.is. Hann segir að lögreglunni á Suðurlandi hafi ekki borist tilkynningar um að einhvers væri saknað á svæðinu undanfarna daga.
Bíll sem talinn er hafa verið leigður af parinu stendur á bílastæði við Sólheimasand og er vitað að hann fór um Hvolsvöll á austurleið kl. 14.55 hinn 13. janúar sl. er fram kemur í tilkynningu lögreglu.
Sjá einnig: Lík tveggja ferðalanga fundust á Sólheimasandi