Á upplýsingafundi almannavarna nú síðdegis minnti Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, fólk á að í dag er 16. apríl en ekki 4. maí Hann segir greinilegt að fólk sé byrjað að slaka á hvað sóttvarnir og samkomubann varðar síðan ríkisstjórnin kynnti afléttingu samkomuhafta í vikunni.
Víðir minnti á að ennþá eru nokkrar vikur í 4. maí en þá taka breytingar á samkomubanni gildi. Samkomubannið er ennþá í fullu gildi en banninu verður aflétt í fáum en stórum skrefum frá og með 4. maí eins og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra greindi frá á þriðjudaginn.
Nánari upplýsingar um breytingar á takmörkunum á samkomum er að finna á vef Stjórnarráðsins. Þar kemur m.a. fram að fjöldamörk samkomubanns muni frá og með 4. maí miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.