Það er 13,1 prósent verðmunur er á dýrustu og ódýrustu matarkörfunni í heimsendingu, samkvæmt könnun Mannlífs.
Bornar voru saman verslanirnar Heimkaup, Krónan, Nettó og Hagkaup. Bónus heldur ekki úti netverslun. Samanburður á vörukörfum með sömu vöruliðum eða sambærilegum vöruliðum á sama verðbili leiddi í ljós að Heimkaup er ódýrast en Hagkaup dýrast af þessum verslunum.
Ódýrasta vörukarfan innihélt vörur fyrir alls 12.473,- en dýrasta karfan 14.348,-. Eingöngu munaði 226 krónum á körfu Heimkaupa og körfu Krónunnar sem kostaði 12.699,- en karfa Nettó kostaði alls 13.877,-. Þannig munar 1875 krónur í hverri innkaupaferð eða 7500 krónum á mánuði ef verslað er einu sinni í viku.
Verslanirnar fjórar bjóða allar upp á netverslanir sem eru aðgengilegar á síðum verslananna eða með appi. Krónan er ein verslanna sem býður eingöngu upp á app, Hagkaup og Heimkaup eru eingöngu með vefsíður en Nettó er með vefverslun sína á heimasíðu aha og aðgengileg um app sem Samkaup heldur úti.
Útfærslur heimsendingarinnar eru svo mismunandi milli verslanna. Krónan og Nettó senda eingöngu innan höfuðborgarsvæðisins og innheimta 1.490,- sendingargjald eða bjóða hana ókeypis ef keypt er fyrir hærri upphæð en 15.000,-. Heimkaup senda frítt heim á Höfuðborgarsvæðinu en nauðsynlegt er að kaupa vörur fyrir 7.900,- eða meira. Fólk á landsbyggðinni getur pantað frá Heimkaup en þá senda þau vörurnar með Póstinum. Hagkaup sendir aðeins með Póstinum og innheimtir alls 1.980,- pökkunar- og sendingargjald.