Sanna Magdalena Mörtudóttir birti afar fallega mynd af sér með móður sinni er Sanna var lítil stúlka.
Hún segir að „í kvöld og öll kvöld er ég þakklát fyrir að vera dóttir mömmu minnar.“
Sanna segir að hún og móðir hennar hafi upplifað eitt og annað:
„Ýmis lífsreynsla sem við mæðgur höfum upplifað og ég lít á skortinn, fátæktina og vonbrigðin sem því fylgdu sem veganesti sem er alltaf í töskunni minni í þeim störfum sem ég býð mig fram í.“
Þakklát Sanna heldur nú áfram för sinni og stefnir ótrauð á þing.
Segir að lokum:
„Fer vel nestuð inn í baráttuna sem er framundan; baráttuna gegn misskiptingu og ójöfnuði.“