Í gær var karlmaður dæmur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrekuð brot á nálgunnarbanni, brot í nánu sambandi, líkamsárás, húsbrot, vopnalagabrot og umferðarlagabrot. Meðal þeirra gagna sem fram komu í málinu voru 50 textaskipaboð og tölvupóstar sem maðurinn endi á fyrrverandi sambýliskonu sína, sambýlismann hennar, vinkonu og yngri systur sína. Var þeim ítrekað hótað hrottalegu ofbeldi og lífláti. Maðurinn var einnig fyrir líkamsárás á fyrrverandi sambýliskonuna og að hafa hóta karlmanni með skotvopni.
Hinn dæmdi hefur átt við geðræn vandamál að etja og á að baki langa sögu fíkniefnaneyslu.
Hótanir um líkamsmeiðingar og dauða
Karlmaðurinn var meðal annars ákærður fyrir að hafa sent skilaboð í síma vinkonu fyrrverandi kærustu sinnar undir öðru nafni og hótað að berja fyrrverandi kærustu sína:
„Nú vill ég bara segja þér. Ef ég fer aftur inn útaf T þá er ég að fara að berja hana það ílla að mamma hennar er ekki eftir að þekkja hana þegar Nbannið er búið og ég laus,“ segir í sms skilaboðunum til vinkonu fyrrverandi kærustu mannsins.
Fyrrverandi sambýliskona mannsin fékk yfir þúsund skilaboð frá manninum úr hinum ýmsu númerum þrátt fyrir nálgunarbann. Öll hljóma þau á sama veg, eru hótanir um líkamsmeiðingar og dauða. Hann segist meðal annars ætla að skjóta hana í hausinn.
„Ok núna er ég að fara út og koma til þín nema þú gefir mér svar. Gef þér 10min eða þu serð mig eftir sma. Ég mun leita af þér útum allt, klifra upp svalir ef þess þarf. Ég vill fá fokking skaðabætur, hlitur að skilja það. Mundu. Þú bauðst uppá þetta. Ég drep þig. Veistu mer hlakkar rosalega til að hitta þig uta gotu einhverntiman. Ég er utum allt alla daga, einn daginn næ eg þer. Og þegar eg næ þer, þú ert eftir að vilja fara a hne og biðja bænir um að ég sé ekki eftir að permanently eyðileggja a þer skrokkinn. Nú eru allir vinir minir að fara segja mer hvar þu ert um leið og þeir sja þig. Og ég mun mæta á staðin um leið. Ég mun ekki hika við það.“
„Ætla að drepa þennan gaur“
Kærasta sambýliskonunnar fyrrverandi er einnig hótað:
„Eg er að fara drepa þig og hann nema þu biðjir afsokunar og hjalpar mer að laga skemmdinar eftir þig og meinar það sem þu segir að þu elskir mig. Eg ætla drepa þennan gaur eg er að segja þer það. Eg ætla stinga hnif i eistun a honum og svo hjartað.“
Hann hótar henni ef hún muni segja frá: „Og hey ætla bara segja þer það nuna. Ef eg fretti eitthverstaðar að þu sert að dreyfa ut þvi sem eg er að segja við þig. Þá mun ég drepa þig i stað snoða þig.“
Hótanir mannsins beindust einnig að fjölskyldu hans er hann hótaði systur sinni ítrekað lífláti:
„Mundu bara það Eað ef ég fer inn aftur útaf þér. Þá drep ég þig þegar ég losna og mér er alvara ég mun drepa þig bókstaflega sama þó ég fái 10-20-30-40 ár,“ segir meðal annar í skilaboðum mannsins til systur sinnar.
„Ef litla systir mín og fjölskylda mín og kærasta mín og allir.vilja mér þá drep ég ykkur öll. Um leið og ég losna þá fer ég strax í það að kveikja í húsunum ykkar.“
„Og þú skallt fokking muna það. Alla síðustu fangelsisvistina mína þá var ég búin að hugsa „ALLAN TÍMAN“ um að drepa þig næst þegar ég kæmi út. Næst stend ég við það“
Atlaga með hnífi
Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa sunnudaginn 3. febrúar 2019 veist að einstaklingi með hnífi í íbúð í Hafnarfirði. Hann er sagður ítrekað hafa reynt að leggja að leggja hnífnum að einstaklingnum sem við það flúði frá honum út á svalir íbúðarinnar og lokaði svaladyrunum. Ákærði hélt áfram atlögu sinni og sló hnífnum ítrekað í gler í rúðu svalahurðarinnar uns það brotnaði.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa sent ónefndum aðila skilaboð gegnum Facebook og hóta honum lífláti meðan hann handlék skotvopn.
„Hlustaðu á mig ég og gengið mitt mun berja þig í klessu ef þú lætur ekki H vera. Hún er konan mín og ég er að segja þér það ég mun finna út úr því hvar þú býrð og fara þangað vopnaður með vinum mínum ef þess þarf“
„Hlustaðu núna þú talar ekki við hana aftur eða ég mun finna þig. Ég mun tæma íbúðina þína og skilja þig eftir með ekkert. Ég mun kreista úr þér allan pening sem þú átt.“
Þá er hann ákærður fyrir að hafa ráðist á sama aðila í Reykjavík síðasta sumar og veist að honum með ofbeldi með þeim afleiðingum að hann hlaut brot bæði í nefbeini og kinnbeini. Hann fór einnig að lokum heim til aðilans þar sem hann var með „H“ og braut gler í 7 svalarúðum með hamri.
Laus eftir 17 mánuði
Maðurinn er einnig ákærður fyrir ítrekuð brot í nánu sambandi með því að hafa veist að þáverandi kærustu sinni kýlt hana hana með krepptum hnefa í andlitið á heimili hennar 22. maí og í bifreið sinni 4. júní 2020. Þá hótaði hann henni einnig ofbeldi með skilaboðum 26. júní:
„Ég er að fara fokking berja þig í klessu ef þú borgar mér ekki þó ég fari inni fangelsi nú er mér orðið drullu sama. Fokkar ekkert svona í mér og kemur svona fram við mig, ég var bara góður við þig helvítis mellan þín. Þú færð það sem þú gefur mundu það. Ég er að fara finna þig. Ég veit að þú lentir í Reykjavík klukkan 5 í dag. Shit eg er að fara fokking eta þig. Ég er að fara stúta þér,“ segir í skilaboðum mannsins.
Sem fyrr segir var maðurinn dæmdur í fangelsi í tvö ár en til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt óslitið frá 1. október 2020 til dagsins í dag. Maðurinn mun því að óbreyttu verða laus eftir 17 mánuði.
Gerð voru upptæk 2.367,6 g af kannabislaufum, 663,4 g af kannabisstönglum, 231,95 g af maríjúana, 25 kannabisplöntur, 24 stykki af anabólískum sterum af óþekktri gerð, 7 millilítrar af anabólískum sterum í formi stungulyfsins nandrolon, 2,5 millilítrar af anabólískum sterum í formi stungulyfsins testosteron og litboltabyssa.
Ákærða var einnig gert að greiða 1,4 milljónir króna í miskabætur ásamt málsvarnarlaun verjanda síns að upphæð 5 milljónir króna.