Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til netverja um allar mögulegar upplýsingar varðandi þennan mann. Lögreglan óskar að ná tali af viðkomandi vegna máls sem er til rannsóknar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.