Frá og með miðnætti tóku við nýjar sóttvarnarreglur þar sem dregið er verulega úr kröfum um grímunotkun. Þá hækka fjöldatakmarkanir í 150 manns frá 50 sem áður var.
Grímuskylda er nú ekki lengur í verslunum og á vinnustöðum en áfram er gert ð krafa um grímur á sitjandi viðburðum og við þjónustu sem krefst mikillar nándar, svo sem á hárgreiðslu- og snyrtistofum.
Tveggja metra reglan er áfram í gildi en á sitjandi viðburðum og veitingastöðum tekru við eins metra nándarregla.
Þessar breytingar á sóttvarnarlögum tóku gildi á miðnætti:
- Nándarregla: Tveggja metra nándarmörk verða áfram meginregla nema á veitingastöðum, sitjandi viðburðum, í skólastarfi og á sund- og baðstöðum þar sem nándarmörkin verða einn metri.
- Grímuskylda: Grímuskylda fellur niður í verslunum og á vinnustöðum. Einungis er gerð krafa um grímu á sitjandi viðburðum, s.s. leiksýningum, bíósýningum, í kirkjuathöfnum á íþróttaviðburðum og viðlíka. Einnig er skylt að bera grímu vegna þjónustu sem krefst mikillar nándar, t.d. á hárgreiðslustofum, nuddstofum og við sambærilegar aðstæður. Heilbrigðisstofnanir geta gert ríkari kröfur um grímunotkun.
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 150 manns. Börn fædd 2015 og verða áfram undanþegin.
- Sund- og baðstaðir, tjaldstæði, skíðasvæði og söfn mega opna fyrir leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í stað kröfu um 75% áður.
- Líkamsræktarstöðvar mega opna miðað við leyfilegan hámarksfjölda gesta, í stað 75%, en þó þannig að ekki séu fleiri en 150 manns í hverju rými.
- Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda fer úr 150 í 300 manns í hverju sóttvarnahólfi. Veitingar, þ.m.t. vínveitingar heimilar í hléi.
- Verslanir: Enginn hámarksfjöldi verður á viðskiptavinum í verslunum í stað 200 manns. Áfram verður þó regla um fjölda viðskiptavina á fermetra.
- Veitingastaðir: Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, frá kl. 22 til kl. 23. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir miðnætti.
- Skólastarf: Reglugerð um takmarkanir á skólastarfi fellur brott. Þess í stað gilda um skólastarf almennar reglur um samkomutakmarkanir.